Angelo Ogbonna varnarmaður West Ham hefur verið kallaður inn í ítalska landsliðshópinn fyrir komandi vináttulandsleiki gegn Argentínu og Englandi.
Ogbonna kemur í hópinn í stað Giorgio Chiellinni varnarmanns Juventus sem er meiddur.
Ogbonna sem spilaði áður með Chiellini hjá Juventus hefur spilað 31 leik fyrir West Ham á tímabilinu og skorað 3 mörk.
West Ham eru tveimur stigum fyrir ofan fallsæti í ensku úrvalsdeildinni og hafa 8 leiki eftir af tímabilinu til þess að tryggja sæti sitt í deildinni fyrir næsta ár.
Þeirra bíður alvöru verkefni eftir landsleikina þegar liðið mætir Southampton í fallbaráttuslag.

Athugasemdir