Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 19. mars 2018 15:00
Magnús Már Einarsson
Welbeck ekki refsað fyrir leikaraskap
Mynd: Getty Images
Danny Welbeck, framherji Arsenal, verður ekki refsað fyrir leikaraskap í 3-1 sigrinum á AC Milan í Evrópudeildinni á fimmtudaginn.

Welbeck fiskaði vítaspyrnu þegar AC Milan var 1-0 yfir og staðan var þá 2-1 fyrir Arsenal samanlagt.

Welbeck lét sig falla eftir baráttu við Ricardo Rodriguez og hann skoraði síðan sjálfur úr vítaspyrnunni.

Aganefnd UEFA skoðaði atvikið og komst að þeirri niðurstöðu að Welbeck verður ekki refsað þrátt fyrir að hafa látið sig falla auðveldlega til jarðar.

Welbeck verður því með Arsenal gegn CSKA Moskvu í fyrri leiknum í 8-liða úrslitunum þann 5. apríl næstkomandi.
Athugasemdir
banner
banner