Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 19. apríl 2014 19:10
Brynjar Ingi Erluson
Meira frá Poyet: Fæ eflaust fullt af sms-um frá Suarez í kvöld
Mynd: Getty Images
Úrúgvæski knattspyrnustjórinn, Gustavo Poyet, hafði nóg að segja við blaðamenn eftir 1-2 sigur liðsins á Chelsea í dag en hann ræddi um titilbaráttuna.

Sunderland er í botnbaráttu sem stendur en liðið sótti fjögur mikilvæg stig gegn Chelsea og Manchester City í þessari viku.

Liðið sigraði Chelsea á Stamford Bridge í dag en ljóst er að möguleikar Chelsea eru ekki miklir eftir tapið í dag.

,,Ég er viss um að ég eigi eftir að fá nokkur sms frá Luis Suarez í kvöld. Ég væri til í að sjá Chelsea vinna deildina en ef ekki þeir þá Liverpool og Luis," sagði Poyet.
Athugasemdir
banner