Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 19. apríl 2014 17:37
Magnús Már Einarsson
Myndband: Ramires á leið í leikbann?
Ramires gæti verið í vandræðum.
Ramires gæti verið í vandræðum.
Mynd: Getty Images
Ramires var stálheppinn að sleppa við rautt spjald í leik liðsins gegn Sunderland eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan.

Ramires sló Sebastian Larsson undir lok fyrri hálfleiks en Mike Dean dómari leiksins sá ekki atvikið.

Enska knattspyrnusambandið gæti hins vegar dæmt Ramires í þrigga leikja bann af myndbandsupptökum.

Ef sambandið gerir það þá mun Ramires ekki koma meira við sögu á tímabilinu og meðal annars missa af toppslagnum gegn Liverpool um næstu helgi.

Staðan í hálfleik í leik Chelsea og Sunderland er 1-1 en Connor Wickham jafnaði fyrir gestina eftir að Samuel Eto´o skoraði fyrsta markið.


Athugasemdir
banner
banner
banner