Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 19. apríl 2014 15:11
Magnús Már Einarsson
Sandro: Lol lol lol
Mynd: Getty Images
Sandro, miðjumaður Tottenham, var ekki í leikmannahópi liðsins gegn Fulham í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Brasilíumaðurinn setti færslu á Twitter í morgun þar sem hann lét stuðningsmenn vita að hann sé ekki meiddur en Tim Sherwood stjóri Tottenham kippti sér lítið upp við þá færslu.

,,Hann má gera það sem hann vill. Þetta er rétt hjá honum, hann er ekki meiddur. Hann er ekki nægilega góður til að spila í liðinu mínu í augnablikinu en hann mun spila þegar ég tel að hann sé nógu góður til þess," sagði Sherwood.

,,Ég kann vel við Sandro sem strák og hann hefur hæfileika en ég er að velja aðra á undan honum núna."

Sandro setti síðan færslu á Twitter eftir leik þar sem hann hló af ummælum Sherwood með því að skrifa ,,Lol lol lol ..."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner