Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 19. apríl 2014 23:00
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Vela hetja Sociedad gegn Espanyol
Carlos Vela tryggði Sociedad sigur
Carlos Vela tryggði Sociedad sigur
Mynd: Getty Images
Real Sociedad 2 - 1 Espanyol
0-1 Jhon Cordoba ('23 )
1-1 Sergio Canales ('32 )
2-1 Carlos Vela ('90 )

Real Sociedad sigraði Espanyol með tveimur mörkum gegn einu í spænsku deildinni í dag en sigurmarkið kom undir lok leiksins.

Jhon Cordoba kom Sociedad yfir á 23. mínútu leiksins áður en spænski miðjumaðurinn Sergio Canales jafnaði metin tíu mínútum síðar.

Það var svo mexíkóski framherjinn Carlos Vela sem tryggði Sociedad stigin þrjú með laglegu marki udnir lok leiksins.

Lokatölur því 2-1 fyrir Sociedad sem er í sjötta sæti með 54 stig á meðan Espanyol er í tíunda sæti með 41 stig.
Athugasemdir
banner
banner