Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 19. apríl 2014 12:00
Ívan Guðjón Baldursson
Wenger býst við meiru frá Giroud
Olivier Giroud er búinn að skora 20 mörk í öllum keppnum
Olivier Giroud er búinn að skora 20 mörk í öllum keppnum
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger er ánægður með framfarir Olivier Giroud en segir sóknarmanninn þó ekki nægilega góðan að klára færi og skora með skalla.

Wenger telur sjálfstraust Giroud komið aftur eftir erfiðan kafla og segist hafa búist við fleiri skallamörkum frá leikmanninum.

,,Hann er búinn að öðlast meira sjálfstraust og trúverðugleika meðal fólks sem efaðist um gæði hans, það er mikilvægt," sagði Wenger.

,,Hann hefur staðið sig vel en gengið gegnum erfiða tíma nýlega, líkt og Mesut Özil.

,,Hann er sterkur strákur með sterkt hugarfar. Hann er sterkur, jákvæður náungi. Hugarfarið hans er gríðarlega jákvætt og það hefur hjálpað honum að ná sér.

,,Hann er búinn að skora 20 mörk á tímabilinu sem er frábært og hefur lagt gríðarlega mikið á sig fyrir liðið.

,,Kannski er hann orðinn betri að klára færi en hann getur ennþá bætt sig. Til dæmis býst ég við fleiri skallamörkum frá honum."

Athugasemdir
banner
banner
banner