Englandsmeistarar Manchester City fá West Ham í heimsókn í fyrsta leik dagsins í enska boltanum.
Þessum liðum hefur gengið frekar illa upp á síðkastið en Man City þarf nauðsynlega á sigri að halda í baráttunni um Meistaradeildarsæti.
West Ham var á meðal efstu liða um áramótin en heldur hefur hallað undan fæti hjá Sam Allardyce og hans mönnum á seinni hluta leiktíðar en liðið er í 10.sæti. Með sigri í dag fer liðið upp fyrir Stoke sem er í 9.sæti.
Byrjunarlið Man City:Hart, Zabaleta, Demichelis, Mangala, Kolarov, Fernando, Navas, Yaya Toure, Lampard, Silva, Aguero
Byrjunarlið West Ham:Adrian, Reid, Cresswell, Kouyate, Downing, Noble (c), Jenkinson, Collins, Cole, Song, Valencia
Athugasemdir