sun 19. apríl 2015 09:30
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: InsideSpanishFootball 
Luka Modric frá keppni í 5-6 vikur
Modric meiddur í gær.
Modric meiddur í gær.
Mynd: EPA
Króatinn Luka Modric spilar ekkert með Real Madrid næstu 5-6 vikurnar eftir að hafa meiðst á hné í 3-1 sigrinum á Malaga í spænsku deidinni í gær.

Þar með er ljóst að Modric spilar varla meira með liðinu á tímabilinu.

Hann meiddist á 58. mínútu leiksins og varð að fara af veli til að fá aðhlynningu í búningsklefanum.

Þar var farið yfir meiðslin og spænska dagblaðið AS sagði so eftir leik að ljóst væri að það tæki allavega 5-6 vikur áður en hann er klár í slaginn að nýju.

Hann missti af leikjum liðsins frá nóvember til mars en það var versti kafli liðsins á tímabilinu svo ljóst er að missirinn verður mikill.
Athugasemdir
banner
banner
banner