PSV Eindhoven er búið að staðfesta áhuga Manchester United á Memphis Depay.
Memphis Depay er 21 árs gamall og á þegar 15 landsleiki að baki fyrir Holland auk þess að vera búinn að spila 87 deildarleiki fyrir PSV á síðustu fjórum árum.
Memphis Depay er 21 árs gamall og á þegar 15 landsleiki að baki fyrir Holland auk þess að vera búinn að spila 87 deildarleiki fyrir PSV á síðustu fjórum árum.
,,Við erum búnir að fá símtal frá Man Utd vegna Depay," sagði Marcel Brands, einn forstöðumanna félagsins.
,,Við höfum þó ekki enn fengið tilboð. Það eru nokkur toppfélög sem hafa áhuga á honum og við munum selja hann mjög dýrt."
Depay er búinn að skora 20 mörk í 27 leikjum á tímabilinu og er talinn meðal efnilegustu leikmanna heims.
Athugasemdir