Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 19. apríl 2015 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sóknarmaður Chelsea bestur í Championship deildinni
Bamford og Chelsea eru að semja um nýjan og bættan samning.
Bamford og Chelsea eru að semja um nýjan og bættan samning.
Mynd: Getty Images
Patrick Bamford hefur verið krýndur besti leikmaður tímabilsins í Championship deildinni.

Bamford er sóknarmaður Chelsea á láni hjá Middlesbrough þar sem hann er búinn að gera 17 mörk á tímabilinu og hefur verið lykilmaður hjá toppbaráttuliðinu.

Daryl Murphy, leikmaður Ipswich Town, og Troy Deeney, leikmaður Watford, voru keppinautar Bamford í kjörinu.

Joe Garner, leikmaður Preston North End, var valinn bestur í C-deildinni og Danny Mayor, leikmaður Bury, í D-deildinni.

Þá var Dele Alli, leikmaður Tottenham á láni hjá MK Dons, valinn besti ungi leikmaður neðri deildanna framyfir Bamford og Nathan Redmond.
Athugasemdir
banner
banner
banner