Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 19. apríl 2015 12:05
Arnar Geir Halldórsson
Spánn: Almeria mistókst að komast úr fallsæti
Varnarjaxlinn Antonio Amaya skoraði í dag
Varnarjaxlinn Antonio Amaya skoraði í dag
Mynd: Getty Images
Rayo Vallecano 2 - 0 Almeria
1-0 Antonio Amaya ('23 )
2-0 Miku ('90 )


Almeria missti af tækifæri á að komast í 15.sæti deildarinnar þegar liðið tapaði fyrir Rayo Vallecano í fyrsta leik dagsins í La Liga.

Antonio Amaya kom heimamönnum yfir á 23.mínútu og varamaðurinn Miku gerði út um leikinn með marki í uppbótartíma.

Almeria er því enn í 18.sæti með jafnmörg stig og Deportivo La Coruna sem er sæti ofar. Levante, Elche og Eibar koma svo í næstu sætum fyrir ofan og eru í bullandi fallhættu þegar sex umferðir eru eftir.

Sigurinn fleytti Rayo Vallecano upp í 10.sæti þar sem liðið er með 41 stig.
Athugasemdir
banner
banner