Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 19. maí 2013 20:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Ancelotti hefur beðið um að fá að fara til Madrid
Paris Saint-Germain hefur staðfest að Carlo Ancelotti vilji yfirgefa félagið svo hann geti tekið við Real Madrid í sumar.

Sá orðrómur er á kreiki um að Ancelotti muni hætta með liðið í sumar en hann er sagður hafa tilkynnt ákvörðun sína fyrir forráðamönnum félagsins á fundi sem haldinn var í morgun.

Leonardo, yfirmaður íþróttámála hjá PSG, viðurkenndi að Ancelotti hafi beðið um að yfirgefa félagið en hann heldur þó enn í vonina um að halda þjálfaranum.

,,Carlo hefur beðið um að fá að fara til Madrid en við viljum að hann haldi hér áfram. Engin ákvörðun hefur verið tekin, við hlustuðum bara á hann," sagði Leonardo.

,,Við munum fara aðeins yfir stöðuna. Við viljum enn halda honum og höfum aldrei talað við aðra þjálfara. Carlo Ancelotti er samningsbundinn okkur."

Þá hefur félagið einnig staðfest að Real Madrid hafi þegar haft samband og vilji fá Ancelotti til að taka við af Jose Mourinho sem er sagður á leið til Chelsea á ný.

Slapp