Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 19. maí 2013 14:00
Elvar Geir Magnússon
Sjónvarp - Gunnar á Völlum fór á kostum og Hansi borðaði tómat
Upptaka af seinni hluta þáttarins
Mynd: Twitter
Annar sjónvarpsþáttur Fótbolta.net var á dagskrá fyrir helgina. Þátturinn er á SportTv á föstudögum klukkan 12:30.

SMELLTU HÉR TIL AÐ HORFA Á SEINNI HLUTA ÞÁTTARINS

Sóli Hólm og Sigurbjörn Hreiðarsson eru umsjónarmenn þáttarins og í seinni hluta hans fengu þeir Gunnar Sigurðarson, Gunnar á Völlum, í spjall um Víking Ólafsvík. Þá mætti íþróttafréttamaðurinn Hans Steinar Bjarnason og stóð við sín orð og borðaði tómat sem hann dýfði í lýsi fyrst Eyþór komst í úrslitakvöld Eurovision.



Þátturinn er á föstudögum klukkan 12:30 í beinni vefútsendingu á SportTv.is og einnig sýndur í sjónvarpi á rás 17 í sjónvarpi Símans og 800 hjá Vodafone. Upptaka af honum verður svo sett inn á heimasíðu SportTv

Umsjónarmenn eru Sóli Hólm og Sigurbjörn Hreiðarsson. Áhorfendur geta tekið þátt og komið með uppástungur að umræðuefni með því að hafa samband á @SoliHolm á Twitter.
Slapp
banner
banner