Mark Gareth Bale breytti litlu
Tímabilinu er lokið í ensku úrvalsdeildinni en lokaumferðin fór fram í dag. Arsenal hreppti fjórða sætið með sigri gegn Newcastle og fer því í Meistaradeildina. Tottenham vann sinn leik en það breytti engu, liðið þarf að sætta sig við Evrópudeildina.
Það var heilmikið skorað í dag. Everton tapaði sínum síðasta leik undir stjórn David Moyes en Fernando Torres skoraði sigurmark Chelsea í síðasta leik liðsins undir stjórn Rafael Benítez.
Stærsta flugeldasýningin var þó í leik West Bromwich Albion og Manchester United. Í fyrsta sinn gerði United 5-5 jafntefli í deildarleik undir stjórn Sir Alex Ferguson. Paul Scholes lék síðustu 20 mínútur leiksins í sínum síðasta leik.
Lokastaða efstu liða:
1 Manchester United 89 stig
2 Manchester City 78
3 Chelsea 75
4 Arsenal 73
5 Tottenham 72
Tottenham 1 - 0 Sunderland
1-0 Gareth Bale ('89)
Rautt spjald: David Vaughan, Sunderland ('75)
Newcastle 0 - 1 Arsenal
0-1 Laurent Koscielny ('53 )
Chelsea 2 - 1 Everton
1-0 Juan Mata ('8 )
1-1 Steven Naismith ('15 )
2-1 Fernando Torres ('76 )
Liverpool 1 - 0 QPR
1-0 Philippe Coutinho ('23 )
West Ham 4 - 2 Reading
1-0 Kevin Nolan ('23 )
2-0 Ricardo Vaz Te ('34 )
2-1 Garath McCleary ('53 )
2-2 Adam Le Fondre ('55 )
3-2 Kevin Nolan ('79 )
4-2 Kevin Nolan ('87 )
Manchester City 2 - 3 Norwich
0-1 Anthony Pilkington ('26 )
1-1 Jack Rodwell ('29 )
1-2 Grant Holt ('54 )
2-2 Jack Rodwell ('59 )
Swansea 0 - 3 Fulham
0-1 Alexander Kacaniklic ('22 )
0-2 Dimitar Berbatov ('77 )
0-3 Urby Emanuelson ('90 )
West Brom 5 - 5 Manchester Utd
0-1 Shinji Kagawa ('6 )
0-2 Jonas Olsson ('9 , sjálfsmark)
0-3 Alexander Buttner ('30 )
1-3 James Morrison ('41 )
2-3 Romelu Lukaku ('50 )
2-4 Robin van Persie ('53 )
2-5 Javier Hernandez ('63 )
3-5 Romelu Lukaku ('80 )
4-5 Youssuf Mulumbu ('81 )
5-5 Romelu Lukaku ('86 )
Southampton 1 - 1 Stoke City
0-1 Peter Crouch ('46 )
1-1 Rickie Lambert ('57 )
Wigan 2 - 2 Aston Villa
0-1 Darren Bent ('5 )
1-1 Emmerson Boyce ('21 )
2-1 Nathan Baker ('45 , sjálfsmark)
2-2 Ron Vlaar ('60 )
Fylgst var með gangi mála í dag í beinni textalýsingu:
16:52 Arsenal í Meistaradeildina (Staðfest) Búið að flauta af í leikjum Arsenal og Tottenham. Bæði lið vinna og Arsenal hirðir fjórða sætið á meðan Tottenham þarf að sætta sig við Evrópudeildina. Síðasti leikur Gareth Bale?
16:50 Gareth Bale skorar! Tottenham er komið yfir en Arsenal er enn að vinna sinn leik svo Arsenal er í fjórða sætinu. Mjög lítið eftir. Staðan er 5-5 hjá West Brom og Man Utd!!! Romelu Lukaku með þrennu.
16:43 Ótrúlegur leikur West Brom og Manchester United! Heimamenn að minnka muninn í 4-5! Alvöru leikur þessi kveðjuleikur Sir Alex og Paul Scholes!
16:40 West Ham komið yfir á ný og Berbatov búinn að skora.
16:35 Lítið eftir af leikjum dagsins, rúmar tíu mínútur. Sunderland misst mann af velli með rautt gegn Tottenham. Á leik West Brom og Manchester United er kveðjustund í gangi. Paul Scholes kominn inn sem varamaður í sínum síðasta leik og sungið í stúkunni fyrir Sir Alex Ferguson og David Beckham. Chelsea komið yfir.
16:28 Norwich er komið yfir gegn Manchester City og það með alvöru marki! Smelltu hér til að sjá markið. Þá er Javier Hernandez búinn að skora fimmta mark Manchester United.
16:22 Allt morandi í mörkum! Robin van Persie innsiglar gullskóinn og kemur Manchester United í 4-2. Tvö mörk frá Reading með stuttu millibili og liðið jafnar í 2-2 gegn West Ham. Grant Holt kom Norwich yfir gegn Manchester City 2-1 en Jack Rodwell jafnaði í 2-2 með öðru marki sínu í leiknum. Southampton og Aston Villa með jöfnunarmörk.
16:16 Arsenal komið yfir! Nú fagna stuðningsmenn Arsenal um allan heim. Ef Arsenal vinnur sinn leik skiptir engu máli hvernig fer hjá Tottenham, Arsenal fer í Meistaradeildina.
16:08 Seinni hálfleikurinn er kominn í fullan gang. Peter Crouch hefur komið Stoke yfir gegn Southampton.
15:48 Hálfleikur Það er kominn hálfleikur í leikjunum. Aðalatvikið úr þessum fyrri helming lokaumferðarinnar var áminningin sem Gareth Bale fékk fyrir leikaraskap þegar hann í raun átti að fá víti. Atvik sem gæti skipt sköpum í baráttunni! Annars má geta þess að Wigan er komið yfir gegn Aston Villa.
15:42 Enn er ekki búið að skora í leikjum Arsenal og Tottenham. Arsenal því í Meistaradeildarsæti sem stendur, Manchester United er 3-1 yfir gegn West Brom.
15:31 Mörkunum byrjað að rigna inn. Tvö mörk komin í leik Manchester City og Norwich, Wigan búið að jafna og West Ham komið yfir gegn Reading.
15:24 Tottenham átti að fá víti! Gareth Bale ranglega spjaldaður fyrir dýfu. Léleg dómgæsla. Þá er hinn funheiti Coutinho búinn að koma Liverpool yfir og Fulham búið að skora.
15:17 Everton hefur jafnað metin gegn Chelsea. Naysmith með markið. Gaman að geta þess að Michael Oliver sem dæmir leik West Brom og Manchester United var eins árs gamall þegar Sir Alex Ferguson tók við stjórnartaumunum hjá United.
15:14 Jonas Olsson með sjálfsmark og Manchester United komið 2-0 yfir. Antonio Valencia með stoðsendinguna.
15:11 Kagawa er búinn að koma United yfir í kveðjuleik Sir Alex. Þá er Chelsea komið yfir og Darren Bent búinn að skora gegn Wigan sem féll í síðustu viku.
15:00 Leikirnir eru farnir af stað. Hér að ofan má sjá hvernig staðan í baráttunni um Meistaradeildarsæti lítur út miðað við stöðuna í leikjunum hverju sinni.
14:53 Styttist í að leikirnir hefjist. Í baráttunni um gullskóinn er Robin van Persie með 25 mörk, Luis Suarez 23 mörk og Gareth Bale 20 mörk. Það þarf því ansi mikið að ganga á til að Van Persie hirði ekki markakóngstitilinn.
14:48 Michael Carrick er fyrirliði Manchester United í dag. Hann fær því þann heiður að vera síðasti fyrirliði Sir Alex Ferguson.
14:28 Jordan Ibe er í byrjunarliði Liverpool. Ibe er aðeins 17 ára og kom til Liverpool frá Wycombe í fyrra. Jamie Carragher er að fara að leika kveðjuleik sinn.
14:24 Heil og sæl. Gylfi Þór Sigurðsson er meðal varamanna Tottenham í dag. Smelltu hér til að sjá byrjunarliðin í leikjunum. Þar má meðal annars sjá síðasta byrjunarliðið sem Sir Alex Ferguson stillir upp hjá Manchester United.


