Rafael Benítez, knattspyrnustjóri Chelsea á Englandi, var ánægður með hvernig tímabilið þróaðist hjá liðinu og árangur liðsins í öllum keppnum.
Chelsea vann Benfica í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á dögunum og þá hafnaði liðið í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir úrslit dagsins, en Benitez er virkilega ánægður með þann árangur sem liðið náði á leiktíðinni.
Benitez mun að öllum líkindum yfirgefa liðið í sumar, en hann tók aðeins við liðinu út þessa leiktíð. Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, mun líklegast taka við liðinu í sumar, en Benítez var engu að síður ánægður með tímabilið.
,,Ég er virkilega stoltur því að liðið er að taka miklum breytingum og maður sér ungu leikmennina spila 69 leiki og gera vel í hverjum einasta leik fram að þeim síðasta. Ég er ánægður fyrir þeirra hönd og mjög svo stoltur," sagði Benítez.
,,Ef þú horfir á árangur liðsins þar sem við reyndum að breyta liðinu mikið til þess að halda mönnum ferskum, þá unnum við Evrópudeildina og enduðum í þriðja sæti deildarinnar, þetta sama lið var í sjötta sæti á síðustu leiktíð, svo þetta er mjög gott."
,,Ég hef fengið mörg skilaboð, svo ég var mjög ánægður með viðbrögðin frá mörgum stuðningsmönnum liðsins. Ég get ekki breytt skoðunum allra, en margir áttuðu sig á því hvað við vorum að reyna að gera. Maður vill helst að stuðningsmennirnir styðji liðið og stjórann, en ef það gengur ekki þá reynir maður bara að gera eins vel og maður getur," sagði hann að lokum




