Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 19. maí 2013 16:27
Sebastían Sævarsson Meyer
Carlo Ancelotti búinn að segja upp hjá PSG?
Sá orðrómur er nú á kreiki að Carlo Ancelotti hefur ákveðið að stíga frá borði hjá Paris Saint-Germain.

Ancelotti fundaði með stjórn félagsins í tvo tíma í dag og er sagður hafa staðfest að hann muni ekki halda áfram með liðið.

Ancelotti tók við PSG í desember árið 2011 og stýrði liðinu til sigurs í frönsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Var það í fyrsta sinn í 19 ár sem PSG varð franskur meistari.

Ancelotti, sem áður hefur stýrt AC Milan og Chelsea með góðum árangri, er sterklega orðaður við þjálfarastöðu Real Madrid á meðan framtíð Jose Mourinho hjá spænska stórveldinu er í óvissu.
Slapp
banner
banner