Carlos Tevez, leikmaður Manchester City, hefur staðfest áhuga sinn á að fara í frönsku úrvalsdeildina og spila annað hvort fyrir Paris Saint-Germain eða Monaco.
Enn og aftur er framtíð argentínska sóknarmannsins í óvissu og hefur hann verið orðaður við brottför, þá sérstaklega í frönsku úrvalsdeildina.
Hann er opinn fyrir því að ganga í raðir Monaco, sem er ný búið að tryggja sér aftur sæti í efstu deild í Frakklandi og ætlar sér stóra hluti í framtíðinni.

,,Fyrir mér er Monaco eitt stærsta félag Frakklands og hvaða leikmaður sem er myndi vilja fara þangað," sagði Tevez.
,,Ég á enn eitt ár eftir af samningi mínum hjá City og ég er ánægður. Ég elska að spila í ensku úrvalsdeildinni en ég er spenntur fyrir verkefninu hjá Monaco."
,,Ég þekki Claudio Ranieri (þjálfara Monaco) og hann hefur sannað að hann er frábær þjálfari. Það yrði frábært fyrir mig að spila undir hans stjórn."
Einnig viðurkennir hann að hann var nálægt því að ganga í raðir Paris Saint-Germain á síðasta tímabili þegar hann var í deilum við City. Tevez er virkilega spenntur fyrir franska boltanum.
,,PSG hafði áhuga á mér og ég talaði við Leonardo (yfirmann íþróttamála), en við komumst ekki að samkomulagi," sagði Tevez.
,,En þetta er áfram áhugaverður kostur þar sem franska úrvalsdeildin er í mikilli uppsiglingu. Ef Leonardo hringir í mig þá er ekkert vandamál fyrir mig að koma, alls ekkert vandamál að koma til Paris og Frakklands.