Heimild: BBC
Þá er komið að daglegum slúðurpakka í boði Powerade en þar er búið að taka saman helsta slúðrið í ensku miðlunum.
Chelsea hefur óskað eftir því við Man Utd að vita kaupverðið á Wayne Rooney en Paris Saint Germain vill íka fá framherjann. (Sunday Mirror)
Manchester City hefur komist að samkomulag við Atletico Madrid um 50 milljón punda kaupverð á framherjanum Radamel Falcao sem er met hjá bresku liði. (Sunday People)
Tottenham mun þurfa að berjast við að halda Gareth Bale í sumar ef liðið vinnur sér ekki sæti í Meistaradeildinni í dag. (Mail on Sunday)
Monaco hefur óvænt óskað eftir því að fá Andy Carroll framherja Liverpool sem er á láni hjá West Ham. (Sunday Telegraph)
Sam Allardyce stjóri West Ham segist vongóður um að ná að kaupa Carroll sem fyrst. (Metro)
Rúmenski vinstri bakvörðurinn Razvan Rat hjá Sahkhtar Donetsk er á leið til West Ham á frjálsri sölu. (Sky Sports)
Chelsea ætlar að losa sig við Fernando Torres í sumar þrátt fyrir að hann hafi skorað 22 mörk á tímabilinu. (The Sun)
Paul Lambert stjóri Aston Villa segir að það hafi verið rétt hjá sér að setja Darren Bent út í kuldann því án þess hefði stjarna Christian Benteke aldrei skinið. (The Sun)
Bent sem er á förum frá Aston Villa í sumar gæti farið til Fulham en til þess þarf að lækka 12 milljón punda verðmiðann sem var á honum í janúar. (Daily Star Sunday)
Christian Eriksen mun hafna því að fara til Liverpool og framlengja hjá Ajax ef Brendan Rodgers stjóri Liverpool býður ekki 15 milljónir punda næsta mánuðinn. (Sunday People)
Paolo Di Canio stjóri Sunderland ætlar að næla í Modibo Diakite varnarmann Lazio og vill líka Valentin Roberge varnarmannn Martimo. (Daily Star Sunday)
Phil Neville sem leggur skóna á hilluna eftir daginn í dag hefur rætt við Bill Kenwright formann Everton um að verða næsti stjóri liðsins en David Moyes er á leið til Man Utd. (Daily Star Sunday)
Michael Appleton fyrrverandi stjóri Blackburn er talinn líklegastur til að taka við U21 árs landsliði Englands ef Stuart Pearce hættir eftir Evrópumótið í júní. (Daily Mirror)
Patrick Vieira er í myndinni sem framtíðarstjóri Manchester City. (Sundayh Mirror)
Mark Hughes og Neil Lennon eru líklegastir til að taka við Leicester City ef Nigel Pearson núverandi stjóri fær að taka hatt sinn og staf. (Mail on Sunday)



