Heimild: Sky Sports
Michael Dawson vonar að Newcastle geri sér greiða og taki stig af Arsenal í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Lokaumferðin verður öll spiluð á sama tíma á morgun og þarf Tottenham sigur gegn Sunderland og að treysta á jákvæð úrslit á St. James' Park.
Lokaumferðin verður öll spiluð á sama tíma á morgun og þarf Tottenham sigur gegn Sunderland og að treysta á jákvæð úrslit á St. James' Park.
,,Ef við vinnum og náum 72 stigum þá er það góður endir á flottu tímabili, en þetta verður bara frábært tímabil ef við náum meistaradeildarsætinu," sagði Dawson.
,,Það var markmið okkar á upphafi tímabilsins og við viljum vera þar eftir að hafa misst af sæti á mjög leiðinlegan hátt í fyrra.
,,Allt sem við getum gert er að einbeita okkur að okkar leik og vona það besta. Við vonum að Newcastle geri okkur greiða og hirði stig af Arsenal.
,,Við verðum bara að fá þrjú stig og sjá hvernig þetta fer."




