Paolo Di Canio er sannfærður um að Sunderland hefði fallið ef hann sjálfur hefði ekki tekið við sem knattspyrnustjóri af Martin O'Neill.
„Ég þarf að vera hreinskilinn. Já ég held að liðið hefði fallið. Að mínu mati var þetta lið á leiðinni niður. Ég náði að breyta hugarfari leikmanna," segir Di Canio.
Reiknað er með því að hann fái að versla um sex nýja leikmenn fyrir næsta tímabil.
Sunderland mætir Tottenham í dag í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar.



