Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 19. maí 2013 05:55
Hafliði Breiðfjörð
England - Leikir dagsins: Lundúnarliðin berjast
Í dag er komið að síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar og fer hún öll fram á sama tíma klukkan 15:00.

Titilbaráttan er ráðin en Manchester United fékk Englandsmeistarabikarinn afhentan í síðustu umferð og þá munu QPR, Reading og Wigan kveðja ensku úrvalsdeildina að sinni en þau eiga enga möguleika á að bjarga sér frá falli.

Einnig er ljóst hvaða lið munu leika í Evrópukeppnum á næstu leiktíð en ekki liggur fyrir hvaða lið mun fylgja Manchester-liðunum í Meistaradeild Evrópu.

Lundúnarliðin Chelsea, Arsenal og Tottenham eru öll í harðri baráttu um sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Þriðja sæti deildarinnar gefur beinan þátttökurétt í riðlakeppnina en liðið sem endar í fjórða sæti þarf að fara í undankeppnina. Fjórða sætið dugar aðeins fyrir Evrópudeildina.

Chelsea er í þriðja sæti með 72 stig og mætir Everton á heimavelli, Arsenal er í fjórða sæti með 70 stig og heimsækir Newcastle á meðan Tottenham er með 69 stig í fimmta sæti og tekur á móti Sunderland.

Sir Alex Ferguson mun stýra Manchester United í allra síðasta sinn þegar liðið heimsækir West Brom og Manchester City mætir Norwich.

QPR mun kveðja ensku úrvalsdeildina á Anfield, Wigan mætir Aston Villa og Reading heimsækir Fulham.

Þá eigast við Southampton og Stoke og í Wales mætast Swansea og Fulham.

Leikir dagsins:
15:00 Newcastle - Arsenal (Beint á Stöð 2 Sport 2)
15:00 Tottenham - Sunderland (Beint á Stöð 2 Sport 3)
15:00 WBA - Manchester United (Beint á Stöð 2 Sport 4)
15:00 Liverpool - QPR (Beint á Stöð 2 Sport 5)
15:00 Chelsea - Everton (Beint á Stöð 2 Sport 6)
15:00 Manchester City - Norwich
15:00 Southampton - Stoke City
15:00 Swansea - Fulham
15:00 West Ham - Reading
15:00 Wigan - Aston Villa
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner