Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 19. maí 2013 05:55
Hafliði Breiðfjörð
Ítalía - Leikir dagsins: Lokaumferðin fer fram í dag
Í dag lýkur lokaumferðinni í Serie A á Ítalíu og níu leikir fram í dag, Sampdoria og meistararnir í Juventus mættust í gær.

Fallbaráttan er ráðin en Palermo, Siena og Pescara munu falla niður í Serie B. Eina baráttan er um sæti í Evrópukeppnum fyrir næstu leiktíð.

AC Milan á bestu möguleika á sæti í undankeppni Meistaradeildarinnar en liðið mætir Siena á sunnudagskvöld. Fiorentina er tveimur stigum á eftir AC Milan í fjórða sætinu og heimsækir Pescara á sama tíma.

Udinese er í fimmta og síðasta sæti sem gefur þátttökurétt í Evrópudeildina og mætir Inter. Lazio vonast að Udinese misstígi sig á San Siro því með sigri gegn Cagliari myndi Lazio lyfta sér upp fyrir Udinese ef Udinese tapar fyrir Inter.

Roma og Inter eiga enga möguleika á evrópusæti í deildinni. Roma getur þó unnið sæti í Evrópudeildinni með sigri á Lazio í úrslitaleik ítalska bikarsins síðar í mánuðinum.

Leikir dagsins:
13:00 Atalanta - Chievo
13:00 Bologna - Genoa
18:45 Roma - Napoli
18:45 Cagliari - Lazio
18:45 Inter - Udinese
18:45 Palermo - Parma
18:45 Pescara - Fiorentina
18:45 Siena - AC Milan
18:45 Torino - Catania
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner