Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 19. maí 2013 13:42
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: BBC 
Kenwyne Jones biðst afsökunar á að brjóta rúðuna hjá Whelan
Svínshöfuðið.
Svínshöfuðið.
Mynd: Instagram
Bíll Michael Owen.
Bíll Michael Owen.
Mynd: Michael Owen
Kenwyne Jones framherji Stoke City hefur beðið Glenn Whelan liðsfélaga sinn afsökunar á að hafa brotið rúðu á bíl hans fyrir helgi.

Jones fann svínshöfuð innan um fötin sín í klefanum á æfingasvæði félagsins á föstudaginn.

Hann brást mjög reiður við og gekk að bíl Whelan og braut framrúðuna. Whelan átti hinsvegar enga sök í þessu máli svo Jones hefur beðið hann afsökunar á framferði sínu.

Stoke hefur sett af stað rannsókn á uppákomunni en félagið hefur þó ekki enn gefið út um hvort nokkrum leikmanni verði refsað.

,,Til að byrja með þá tek ég ekki undir með öllum þeim sem vilja meina að þetta hafi verið kynþáttafordómar," sagði Jones á Twitter síðu sinni. ,,Í öðru lagi hef ég beðið Glenn Whelan afsökunar á að valda skemmdum á eign hans."

,,Til þeirra sem telja að svínshöfuð vafið í fötin mín hafi verið stríðni, frábært, það sama má segja um brotnu rúðuna. Það er engin spenna í hópnum, ég og Whelan höfum rætt málin út og hann segist ekki eiga sök, svo ég baðst afsökunar og mun borga tjónið."

,,Sá sem gerði þetta, hefur ekki enn komið fram og beðið mig afsökunar svo ég geri ráð fyrir að grínið hafi verið gott. En eins og ég segi, ef þú hefur það í þér að fara með stríðni svona langt þá verðurðu að vera tilbúinn að taka afleiðingunum. Þar með lýkur þessu og ég tjái mig ekki frekar."


Atvikið varð nokkrum dögum eftir að bíll Michael Owen var þakinn eggjum og hveiti einn morguninn þegar hann vaknaði.

Jones setti þá á Twitter mynd af bílnum og sagði þetta kveðjugjöf til Owen sem er að leggja skóna á hilluna en neitaði sjálfur sök.
Slapp
banner
banner