Romelu Lukaku, framherji WBA í ensku úrvalsdeildinni, er ekki klár á því hvort hann komi til með að spila áfram með liðinu á næstu leiktíð.
Lukaku, sem er 20 ára gamall, hefur verið á láni hjá WBA frá Chelsea á þessari leiktíð og hefur hann svo sannarlega staðið sig, en hann skoraði 17 mörk í 35 leikjum fyrir félagið.
Hann kom inn á í hálfleik og tókst að skora þrennu gegn Manchester United. Hann kveður nú WBA í bili, en hann lokar ekki á það að spila með liðinu á næstu leiktíð.
,,Við skulum sjá hver verður næsti stjóri Chelsea," sagði Lukaku.
,,Ég vil þakka stuðningsmönnum WBA fyrir þeirra stuðning. Þeir hafa frá fyrsta degi látið mér líða eins og heima hjá mér. Mér leið eins og ég væri í Brussel," sagði hann að lokum.


