Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   sun 19. maí 2013 18:35
Brynjar Ingi Erluson
Fyrirsagna-Halsey leggur flautuna á hilluna
Enski dómarinn Mark Halsey hefur ákveðið eins og margir aðrir tengdir knattspyrnunni að kalla þetta gott, en hann tilkynnti í dag að hann hafi ákveðið að leggja flautuna á hilluna eftir farsælan feril.

Halsey, sem er 51 árs gamall, dæmdi í ensku úrvalsdeildinni frá árinu 1999, en hans fyrsti leikur var milli Wimbledon og Coventry City.

Hann dæmdi marga stórleiki á ferlinum, en hefur ákveðið að kalla þetta gott. Hann glímdi við krabbamein árið 2009, en sigraði það og mætti aftur til leiks í ensku úrvalsdeildina árið 2010.

,,Þetta hefur verið ótrúlegur dagur og móttökurnar hreint út sagt frábærar. Ég viðurkenni að ég féll nokkur tár, sérstaklega þegar Chris Hughton kom til mín og gaf mér áritaða Norwich treyju," sagði Halsey.

,,Ég vil þakka dómarasamtökunum fyrir að hafa gefið mér tækifærið að vera í fullu starfi við að dæma. Að koma til baka eftir að hafa glímt við krabbamein er vonandi hvatning fyrir aðra menn, konur og börn sem berjast við þennan sjúkdóm. Ég hélt aldrei að ég myndi upplifa þennan dag, þetta hefur verið frábært," sagði hann að lokum.
Slapp
banner
banner
banner