Cruz Azul lagði Santos Laguna í mexíkósku efstu deildinni þegar liðin mættust í undanúrslitaleik á heimavelli Laguna. Nú er lokakafli deildartímabilsins í gangi í Mexíkó og aðeins fjögur bestu lið landsins eftir til að keppast um titilinn. Laguna átti heimaleik gegn Cruz Azul og unnu gestirnir með þriggja marka mun. Lokamark leiksins kom á 89. mínútu þegar sóknarmaður Azul var að sleppa í gegn en stöðvaður af Rafael Figueroa sem skoraði í leiðinni magnað sjálfsmark.

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf.
All rights reserved.

