Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 19. maí 2013 18:40
Sebastían Sævarsson Meyer
Redknapp: Geta ekki vaknað snemma og mætt á æfingu
QPR kvaddi ensku úrvalsdeildina að sinni þegar liðið tapaði 1-0 fyrir Liverpool í lokaumferðinni. QPR endaði í neðsta sæti deildarinnar og féll því niður í ensku Championship deildina.

Það er mikil vinna framundan hjá Harry Redknapp, knattspyrnustjóra félagsins, um að púsla saman hóp sem hefur burði til þess að koma liðinu aftur upp í efstu deild.

,,Það hefur oft munað litlu í leikjunum en við náðum aldrei að snúa þeim okkur í hag. Við höfðum ekki gæðin í að halda okkur í úrvalsdeildinni. Við þurfum að bæta það í sumar og vinna með aðilum sem vilja standa sig vel fyrir QPR," sagði Redknapp eftir leikinn.

,,Við getum ekki bara sagt að við munum koma beint upp aftur heldur verðum við að leggja hart að okkur. Við erum með nokkra fagmenn í hópnum en einnig eru einhverjir sem eru ekki alveg svo góðir."

,,Það hefur verið vandamálið. Margir af þeim geta einfaldlega ekki farið snemma á fætur til að mæta á æfingu á réttum tíma."

Slapp
banner
banner
banner