Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   sun 19. maí 2013 16:30
Sebastían Sævarsson Meyer
Schürrle: Vonandi mun Leverkusen standa við sín loforð
Andre Schürrle, leikmaður Leverkusen, vonast til að geta gengið frá félagaskiptum sínum til Chelsea fljótlega eins og honum hefur verið lofað.

Þessi 22 ára framherji skoraði 14 mörk á leiktíðinni og er fastlega gert ráð fyrir því að hann yfirgefi Leverkusen í sumar og er allt útlit fyrir því að hann fari til Chelsea.

,,Þetta kemur í ljós, mér hefur verið gefið ákveðið loforð," sagði Schürrle eftir 1-0 sigurinn á Hamburger í lokaumferðinni í gær.

,,Ég vona að þeir standi við sín loforð. Þetta veltur líka á Leverkusen. Ég held að þetta hafi verið minn síðasti leikur."

Hins vegar eru félagaskiptin í hættu en Leverkusen vildi frá Kevin De Bruyne frá Chelsea til að filla skarð Schürrle. En talið er að Kevin De Bruyne hafi hafnað Leverkusen og kjósi frekar að ganga í raðir Dortmund.

Rudi Völler, yfirmaður íþróttamála, segir að ekkert samkomulag hefur enn náðst við Chelsea.

,,Verum alveg róleg. Þetta gengur bara ef við finnum verðugan eftirmann," sagði Völler.
Slapp
banner
banner