Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   sun 19. maí 2013 14:36
Hafliði Breiðfjörð
Stiliyan Petrov kveður Aston Villa - Öll sæti með andliti hans
Stiliyan Petrov kveður Aston Villa í dag þegar liðið mætir Wigan í ensku úrvalsdeildinni í lokaumferðinni klukkan 15:00. Allir stuðningsmenn liðsins munu fá afhenta grímu með andliti Petrov á leiknum.

Petrov hefur ekki spilað fótboltaleik síðan í mars árið 2012 þegar hann greindist með bráðahvítblæði og tilkynnti í síðustu viku að hann myndi leggja skóna á hilluna.

Stuðningsmenn liðsins hafa stutt hann með góðum hug síðan hann greindist og á 19. mínútu hvers leiks syngja þeir honum til heiðurs en treyjunúmer hans hjá félaginu var 19.

,,Ég hef gengið í gegnum erfiða tíma en stuðningurinn sem ég hef fengið frá fótboltafjölskyldunni og um allan heim hefur verið magnaður," sagði Petrov í vikunni.

Leikurinn hefst eftir tæpan hálftíma og eins og sjá má á meðfylgjandi mynd hefur grímu með andliti Petrov verið komið fyrir á hverju einasta af þeim 3000 sætum sem Aston Villa fékk úthlutað fyrir stuðningsmenn sína á DW leikvangnum.
Slapp
banner