Theo Walcott var ánægður eftir að Arsenal tryggði sér sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili með 1-0 sigri á Newcastle í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.
Tottenham lagði Sunderland 1-0 með marki frá Gareth Bale í lokin og því hefði Arsenal ekki nægt jafntefli í dag.
Tottenham lagði Sunderland 1-0 með marki frá Gareth Bale í lokin og því hefði Arsenal ekki nægt jafntefli í dag.
,,Við vissum ekki af úrslitum Spurs en við vissum hvað við þurftum að gera. Þetta var í okkar höndum og við skiluðum okkar starfi," sagði Walcott.
,,Við þurftum að sanna að fólk hefði rangt fyrir sér. Úrslitin gegn Tottenham fyrr á tímabilinu voru svekkjandi og það er aldrei gott að tapa gegn þeim."
,,Margir héldu að við myndum ekki klára þetta í dag og það er gott að sýna að við gátum gert það."


