Tindastóll 1 - 1 Völsungur:
0-1 Marko Blagojevic ('5, víti)
1-1 Steven Beattie ('39)
0-1 Marko Blagojevic ('5, víti)
1-1 Steven Beattie ('39)
Tindastóll og Völsungur mættust í 2.umferð í dag en leikurinn fór fram í Boganum. Ástæðan fyrir því, er að völlurinn á Sauðárkróki er langt í frá að vera tilbúinn og óvíst hvenær liðið getur spilað á Sauðárkróki. Þar sem enginn gervigrasvöllur er í Skagafirði þá var eini kostur þeirra að spila í Boganum.
Leikurinn var í ákveðnu jafnræði til að byrja með en á 8.mín fengu Völsungar vítaspyrnu og úr henna skoraði Marko Blagojevic
Eftir þetta voru Völsungar ívið sterkari og bættu við marki skömmu seinna en markið réttilega dæmt af, því brotið var á leikmanni Tindastóls í aðdraganda marksins.
Eftir þetta tóku Tindastólsmenn völdin á vellinum og stjórnðu hraða leiksins. Markið lá í loftinu hjá þeim og rétt fyrir hálfleik skoraði Steven Beattie stórglæsilegt mark.
Í seinni hálfleik var Tindastóll meira með boltann en Völsungar beittu skyndisóknum. Bæði lið fengu ágætis færi til þess komast yfir en hvorugt liðið nýtti sér þessi tækifæri.
Heilt yfir voru jafntefli sanngjörn úrslit miðað við færi liðana, En þjálfarar beggja liða væntanlega vonsviknir að þeirra menn skyldu ekki nýta færin betur.
Með þessum leik voru Völsungar að fá sín fyrstu stig í deildinni á meðan Tindastóll er komið með tvö stig.



