Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 19. maí 2013 18:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Villas-Boas: Getum gert betur á næstu leiktíð
Tottenham situr eftir með sárt ennið í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar og missir þar af leiðandi af sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.

Þrátt fyrir 1-0 sigur á Sunderland í lokaumferðinni dugði það ekki fyrir Meistaradeildarsæti þar sem keppinautarnir í Arsenal og Chelsea unnu sína leiki einnig.

Andre Villas-Boas, knattspyrnustjóri Tottenham, var að vonum svekktur eftir niðurstöðuna en segir að liðið muni gera betur á næstu leiktíð.

,,Þetta er fúlt, á endanum gerðum við það sem við þurftum en Arsenal stóð sig vel í sínu verkefni og komst áfram. Þetta er svekkjandi í augnablikinu," sagði Villas-Boas eftir leikinn.

,,Við sáum hvernig úrslitin úr hinum leiknum hafði áhrif á okkar leik. Hann hefði getað verið miklu betri."

Tottenham hefði átt að fá vítaspyrnu í fyrri hálfleik þegar brotið var á Gareth Bale innan teigs en dómari leiksins ákvað frekar að spjalda Bale fyrir dýfu.

,,Við vorum ósáttir að hafa ekki fengið vítaspyrnu í dag, eða alla leiktíðina. Tottenham er æðislegur klúbbur sem mun halda áfram að laða að sér stóra leikmenn og mun halda áfram að berjast," hélt Villas-Boas áfram.

,,Þetta var mjög gott tímabil og börðumst allan tíman við tvö lið um þriðja og fjórða sætið og ég held að við getum gert enn betur á næstu leiktíð."
Slapp
banner
banner
banner