Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 19. maí 2015 15:16
Magnús Már Einarsson
Eggert Gunnþór í liði vikunnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eggert Gunþór Jónsson er í liði vikunnar í dönsku úrvalsdeildinni hjá Tipsbladet.

Eggert átti góðan leik þegar Vestsjælland sigraði Hobro 1-0.

FC Vestsjælland hefur náð í tíu stig í síðustu sex leikjum en liðið er þrátt fyrir það fimm stigum frá öruggu sæti þegar fjórar umferðir eru eftir í dönsku úrvalsdeildinni.

Eggert er í fínum félagsskap í liði umferðarinnar en þar má einnig finna Daniel Agger varnarmann Bröndby og fyrrum leikmann Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner
banner