Ejub Purisevic þjálfari Víkinga var sáttur við sigurinn á Haukum í kvöld sem kemur liðinu í 32ja liða úrslit bikarsins:
"Við vorum ekki að spila vel í fyrri hálfleik þó ég vilji ekkert taka af Haukunum sem voru sterkir varnarlega og að gera vel. En í hálfleik fórum við yfir nokkur atriði og spiluðum vel í þeim síðari"
"Við vorum ekki að spila vel í fyrri hálfleik þó ég vilji ekkert taka af Haukunum sem voru sterkir varnarlega og að gera vel. En í hálfleik fórum við yfir nokkur atriði og spiluðum vel í þeim síðari"
Lestu um leikinn: Víkingur Ó. 2 - 1 Haukar
Hann var sáttur við það sem hann sá til liðsins í kvöld og spenntur fyrir framhaldinu:
"Það eru bara fjórir strákar í liðinu frá í fyrra svo að við höfum ekki alveg náð samæfingu, en ég held að við verðum fínt lið. Við erum með góða leikmenn í liðinu.
Ég vill fá heimaleik næst og er alveg til í nýtt bikarævintýri" sagði Ejub brosmildur í lokin.
Nánar er rætt við Ejub í meðfylgjandi viðtali.
Athugasemdir