Indriði Sigurðsson mun yfirgefa norska félagið Viking í haust og spila á Íslandi næsta sumar.
Hinn 33 ára gamli Indriði hefur verið í atvinnumennsku erlendis frá því árið 1999 en nú er hann á heimleið.
Líklegt þykir að Indriði semji við uppeldisfélag sitt KR.
Hinn 33 ára gamli Indriði hefur verið í atvinnumennsku erlendis frá því árið 1999 en nú er hann á heimleið.
Líklegt þykir að Indriði semji við uppeldisfélag sitt KR.
„Ég tók þessa ákvörðun í febrúar fyrir æfingaferðina á La Manga. Þá var mikið rót í félaginu. Það er ennþá og þessi ákvörðun er rétt. Fjölskyldan vill fara heim núna," sagði Indriði við Aftenbladet.
Fjölskylda Indriða mun flytja heim til Íslands frá Noregi í sumar en hann fer sjálfur heim eftir tímabilið í Noregi.
Indriði hefur á atvinnumannaferli sínum einnig leikið með Lyn og Lilleström í Noregi sem og Genk í Belgíu.
Athugasemdir