Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 19. maí 2015 13:30
Magnús Már Einarsson
Lögregla rannsakaði brot á Reus
Marco Reus.
Marco Reus.
Mynd: Getty Images
Lögreglan í Dresden hefur undanfarna mánuði rannsakað brot sem átti sér stað í bikarleik Dynamo Dreseden og Borussia Dortmund.

Dennis Erdmann varnarmaður Dresden braut á Marco Reus sem fór meiddur af velli.

Lögreglan í Dresden rannsakaði málið sem líkamsárás en málið var látið niður falla þar sem Reus ákvað að kæra ekki.

Erdmann sparkaði í Reus þegar boltinn var nokkrum metrum í burtu en brotið var þó ekki mjög gróft eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan.

Reus var fljótur að jafna sig eftir meiðslin en hann var mættur aftur í slaginn með Dortmund fjórum dögum síðar.


Athugasemdir
banner
banner