Luka Kostic tók tapinu í Ólafsvík af stóískri ró og var nokkuð sáttur við frammistöðuna í fyrri hálfleik, en skemmd í viðtalinu varð til þess að upphaf þess er ekki með og það vantar 38 sekúndur.
Þar ræðir Luka um það að hann var ánægður með baráttuna í strákunum í fyrri hálfleik enda uppskáru þeir mark gegn vindinum og forystuna í leiknum og héldu skipulaginu sem lagt var upp með, en í upphafi viðtalsins sem hér sést er hann einmitt að ræða það að hann taldi liðið tapa skipulaginu í síðari hálfleik.

Lestu um leikinn: Víkingur Ó. 2 - 1 Haukar
"Nú verðum við bara að hugsa um það að gera skipulagið betur, gegn KA í næsta leik.
Við áttum nokkur skot þarna í lokin síðustu 15 mínúturnar en þegar við skoðum leikinn þá áttu Víkingar sigurinn skilinn."
Luca vill að strákarnir læri af þessum leik og þá sérstaklega lokakaflanum.
"Við verðum að læra af reynslunni og spila boltanum eftir jörðinni eins og við gerðum síðustu 15 mínúturnar, þá verðum við í fínum málum."
Nánar er rætt við Luka í viðtalinu sem fylgir.
Athugasemdir