Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 19. maí 2015 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Mourinho: Töpuðum því hin titilbaráttuliðin voru of léleg
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho skaut á samkeppnina í ensku úrvalsdeildinni í viðtali eftir 3-0 tap Chelsea gegn West Bromwich Albion í gærkvöldi.

Mourinho segir sig og sína menn hafa verið of kærulausa og kennir hinum titilbaráttuliðunum um kæruleysið á skondinn hátt.

„Við gerðumst sekir um kæruleysi en ég held að hin titilbaráttuliðin séu líka sek því þau leyfðu okkur að vinna titilinn svona snemma," sagði Mourinho eftir leikinn.

„Ég get ekki bara kennt leikmönnunum um, ég verð að kenna sjálfum mér líka um. Ég leyfði mér að slaka á í viku og þetta er niðurstaðan.

„Við erum meistararnir og það vita allir að við fórum ekki grátandi í rútuna útaf því að við töpuðum 3-0.

„Er ég ánægður með tapið? Auðvitað ekki. Er ég sorgmæddur? Nei. Það hefði verið best að vera krýndir meistarar og ljúka tímabilinu á því án þess að þurfa að spila aukaleiki."

Athugasemdir
banner
banner
banner