Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 19. maí 2015 11:10
Magnús Már Einarsson
Stóri Sam sagður yfirgefa West Ham á mánudag
Sam out.
Sam out.
Mynd: Getty Images
West Ham mun greina frá brottför Sam Allardyce á mánudaginn The Daily Telegraph heldur þessu fram.

David Sullivan og David Gold eigendur West Ham ætla að funda með Stóra Sam á mánudaginn.

Hinn sextugi Allardyce verður samningslaus í sumar.

West Ham vill ekki halda honum en Rafael Benítez þjálfari Napoli hefur verið sterklega orðaður við félagið.

West Ham hefur misst flugið eftir áramót en liðið er í ellefta sæti í ensku úrvalsdeildinni eftir einungis tvo sigra í síðustu 15 leikjum.
Athugasemdir
banner