Annað árið í röð standa Fótbolti.net og AZAZO fyrir Draumaliðsleik í Pepsi-deild kvenna.
Í dag hefst 5. umferð deildarinnar með einum leik, en hann hefst kl. 19:15 á Gaman Ferða vellinum í Hafnarfirði. Leikmannamarkaðurinn í Draumaliðsdeildinni lokar klukkutíma fyrir leik, eða kl. 18:15.
Í dag hefst 5. umferð deildarinnar með einum leik, en hann hefst kl. 19:15 á Gaman Ferða vellinum í Hafnarfirði. Leikmannamarkaðurinn í Draumaliðsdeildinni lokar klukkutíma fyrir leik, eða kl. 18:15.
Það eru núna nokkrir tímar til stefnu og við hvetjum alla, sem vilja, til þess að gera breytingar á sínu liði fyrir umferðina
Leikir umferðarinnar:
Í dag
19:15 Haukar - Breiðablik (Gaman Ferða völlurinn)
Á morgun
14:00 Fylkir - Valur (Floridana völlurinn)
14:00 Stjarnan - Grindavík (Samsung völlurinn)
14:00 ÍBV - FH (Hásteinsvöllur)
16:00 KR - Þór/KA (Alvogenvöllurinn)
Leikurinn í stuttu máli
Þú færð 100 milljónir króna til að kaupa 15 leikmenn úr Pepsi-deildinni. Leikmennirnir fá síðan stig fyrir frammistöðu sína á vellinum en mörg atriði eru tekin inn í reikninginn í stigagjöfinni.
Á síðunni er einnig boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn.
AZAZO mun í samvinnu við samstarfsaðila bjóða upp á ýmis verðlaun og má þar m.a.nefna nýjasta Samsung 8 símann í haust að lokinni keppni, og er það í samvinnu við Tæknivörur.
Athugið að ekki hægt er að nota sama notendanafn og í fyrra. Fólk þarf að skrá sig upp á nýtt í ár.
Taktu þátt og sýndu snilli þína í að velja lið, þátttaka er að sjálfsögðu ókeypis!
Á síðunni er einnig boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn.
Athugasemdir