Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   fös 19. maí 2017 13:15
Magnús Már Einarsson
Gústi Gylfa: Það er karma í þessu
Ágúst Gylfason.
Ágúst Gylfason.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Úr leiknum á Grenivík í gærkvöldi.
Úr leiknum á Grenivík í gærkvöldi.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Það var gaman að heimsækja meistara Palla Gísla. Það var vel tekið á móti okkur og þetta var hörkuleikur. Það var gaman að komast áfram," sagði Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis, við Fótbolta.net í dag um 2-1 sigur liðsins á Magna Grenivík í Borgunarbikarnum í gærkvöldi.

Fjölnismenn sluppu með skrekkinn í fyrri hálfleiknum þegar Victor da Costa skaut yfir úr vítaspyrnu. Fór um Ágúst þá?

„Palli sagði mér að þeir ætluðu að loka fyrir. Setja 5-6 manna vörn og halda út ef þeir hefðu skorað. Það hefði verið býsna erfitt fyrir okkur og ég veit ekki hvernig leikurinn hefði farið."

Fjölnismenn drógust gegn ÍBV þegar dregið var í 16-liða úrslitin í dag og þeir halda því áfram á ferðalagi.

„Fyrir mót sagði ég að við ætluðum að klára ferðalögin í mótinu því að fyrstu útileikirnir voru KA og ÍBV. Síðan kom Grenivík og ÍBV núna. Það er karma í þessu," sagði Ágúst.

Næsti leikur Fjölnis í Pepsi-deildinni er á mánudagskvöld en liðið heimsækir þá Íslandsmeistara FH

„Mér líst mjög vel á það. Þetta verður algjör veisla. Flott veður og tvö frábær fótboltalið á góðum velli. Þetta verður mikil skemmtun. Við reynum að setja leikinn þannig upp að við fáum eitthvað út úr honum."

Ólafur Páll Snorrason, aðstoðarþjálfari FH, og Guðmundur Karl Guðmundsson voru hjá Fjölni í fyrra auk þess sem Bergsveinn Ólafsson, varnarmaður FH, er uppalinn í Fjölni.

„Þeir eru búnir að taka nokkra leikmenn og þjálfara frá okkur undanfarin ár og það verður gaman að stríða þeim," sagði Ágúst að lokum.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.

sunnudagur 21. maí
14:00 Víkingur Ó.-ÍBV (Ólafsvíkurvöllur)
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)
20:00 Stjarnan-KA (Samsung völlurinn)

mánudagur 22. maí
19:15 FH-Fjölnir (Kaplakrikavöllur)
19:15 ÍA-Grindavík (Norðurálsvöllurinn)
20:00 Valur-KR (Valsvöllur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner