Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 19. maí 2017 21:22
Brynjar Ingi Erluson
Pepsi-deild kvenna: Fanndís sá um Hauka
Fanndís Friðriksdóttir skoraði tvö mörk
Fanndís Friðriksdóttir skoraði tvö mörk
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Haukar 1 - 3 Breiðablik
1-0 Marjani Hing Glover (´23)
1-1 Fanndís Friðriksdóttir (´54)
1-2 Fanndís Friðriksdóttir (´74)
1-3 Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir (´84)

Breiðablik lagði Hauka að velli 3-1 á Ásvöllum í kvöld en leikið var í fimmtu umferð Pepsi-deildar kvenna. Blikakonur eru komnar á toppinn með sigrinum.

Það var heldur óvænt byrjun á leiknum en Marjani Hing Glover kom Haukum yfir á 23. mínútu áður en Fanndís Friðriksdóttir jafnaði metin á 54. mínútu leiksins.

Fanndís bætti við öðru stuttu síðar og Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir gulltryggði sigurinn sex mínútum fyrir leikslok.

Breiðablik er í toppsætið með sigrinum en liðið er með tólf stig á meðan Haukaliðið er án stiga úr fyrstu fimm umferðunum.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner