Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 19. maí 2018 15:52
Ingólfur Stefánsson
2. deild: Þróttur ekki í vandræðum með Tindastól
Mynd: Víkurfréttir
Tveir leikir fóru fram í 2. deil karla í dag. Völsungur fékk Vestra í heimsókn á Húsavík og Tindastóll heimsótti Þrótt Vogum.

Guðmundur Óli Steingrímsson kom Völsungum yfir gegn Vestra úr vítaspyrnu eftir 35. mínútna leik en James Mack jafnaði fyrir Vestra á 82. mínútu.

Ásgeir Kristjánsson tryggði Völsungum sigur með marki í uppbótartíma. Völsungar eru með 7 stig eftir fyrstu þrjá leikina en Vestri með 4.

Þróttur Vogum hefur byrjað frábærlega í deildinni og er með fullt hús stiga eftir þrjá leiki eftir 4-0 sigur á Tindastól. Tindastóll er á botninum með 0 stig.

Völsungur 1-1 Vestri
1-0 Guðmundur Óli Steingrímsson, víti (35')
1-1 James Mack (82')
2-1 Ásgeir Kristjánsson (93')

Þróttur V. 4-0 Tindastóll
1-0 Örn Rúnar Magnússon (10')
2-0 Jordan Chase Tyler (20')
3-0 Brynjar Sigþórsson, víti (40')
4-0 Bjarki Már Árnason, sjálfsmark (80')

Markaskorarar af urslit.net
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner