Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 19. maí 2018 14:34
Ingólfur Stefánsson
Eiður Smári spáir Chelsea sigri í FA bikarnum
Mynd: Getty Images
Chelsea og Manchester United mætast í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar á Wembley klukkan 16.15 í dag.

Eiður Smári Guðjohnsen fyrrum leikmaður Chelsea er sérfræðingur fyrir sjónvarpstöðina BBC í dag í upphitun fyrir stórleikinn.

Eiður var beðinn um að spá fyrir um úrslitin í leiknum. Hann var eini sérfræðingurinn sem spáði Chelsea sigri.

Alex Scott, fyrirliði kvennaliðs Arsenal spáði United sigri líkt og Paul Ince fyrrum leikmaður Manchester United.

Þegar röðin kom að Eiði sagði hann: „Ekki séns. Hjartað mitt segir Chelsea og ég er með góða tilfinningu fyrir því að Chelsea muni vinna."


Athugasemdir
banner
banner
banner