Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 19. maí 2018 15:30
Ingólfur Stefánsson
Ítalía: Juventus sigraði í kveðjuleik Buffon
Mynd: Getty Images
Juventus 2 - 1 Verona
1-0 Daniele Rugani ('49 )
2-0 Miralem Pjanic ('52 )
2-1 Alessio Cerci ('76 )
2-1 Stephan Lichtsteiner ('85 , Misnotað víti)

Það var tilfinningaþrungin stund á Juventus vellinum í Torino í dag þegar Gianluigi Buffon spilaði sinn síðasta leik fyrir Ítalíumeistara Juventus eftir 17 ár hjá félaginu.

Bæði stuðningsmenn og leikmenn grétu áður en leikurinn hófst og einnig þegar Buffon var skipt af velli á 64. mínútu. Gífurlega margir borðar og fánar voru á vellinum til heiðurs Buffon.

Buffon fékk ekki á sig mark en honum var skipt af velli í stöðunni 2-0 fyrir Juventus. Hann faðmaði alla liðsfélaga sína og dómara leiksins áður en hann fór af velli fyrir Carlo Pinsoglio.

Verona sem er þegar fallið úr deildinni minnkaði muninn á 76. mínútu en lengra komst liðið ekki.

Juventus fögnuðu því sigri í síðasta leik Buffon.
Athugasemdir
banner
banner
banner