Faðir David Alaba, leikmanns Bayern München, segir að Real Madrid sé áhugasamt um að fá son sinn.
Alaba fór á láni til Hoffenheim árið 2011, annars hefur hann leikið allan sinn feril með Bayern. Á tíma sínum hjá Bayern hefur hann unnið fjölda titla, þar á meðal þýsku Bundesliguna sjö sinnum.
Alaba fór á láni til Hoffenheim árið 2011, annars hefur hann leikið allan sinn feril með Bayern. Á tíma sínum hjá Bayern hefur hann unnið fjölda titla, þar á meðal þýsku Bundesliguna sjö sinnum.
Áður hefur Alaba verið orðaður við Real Madrid og að sögn föður hans, sem er starfar einnig sem umboðsmaður Alaba, gæti hann verið á leið þangað í sumar.
„Allir vita að Real hefur mikinn áhuga á David," sagði George, faðir Alaba, í viðtali við AS.
„Við getum ekki sagt neitt núna. Við munum sjá hvað gerist í sumar. Áhugi Real Madrid er ekkert leyndarmál, en akkúrat núna er ekki rétti tíminn til þess að tala um það. Hann verður að bíða og sjá hvað gerist eftir tímabilið."
Bayern leikur bikarúrslitaleik við Eintracht Frankfurt í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 18:00.
Athugasemdir