Fjölmargir leikir eru á dagskrá í íslenska boltanum í dag, en 16-liða úrslit Borgunarbikars karla verða í fullum gangi.
Fimm leikir eru á dagskrá í 16-liða úrslitum bikarsins, en KR heimsækir meðal annars Leikni í Breiðholtið. Leiknir vann óvænt í vor þegar liðin léku til úrslita á Reykjavíkurmótinu.
Magni Grenivík í þriðju deildinni heimsækir Gróttu á Seltjarnaresið og þá mætast Pepsi-deildar lið Fram og Víkings Ólafsvíkur.
Víkingur Reykjavík og Tindastóll mætast þá einnig í 1. deildarslag og Sindri og Fylkir á Höfn. Hægt er að sjá alla leiki dagsins hér að neðan.
Leikir dagsins:
16-liða úrslit Borgunarbikarsins:
19:15 Leiknir R. - KR (Leiknisvöllur)
19:15 Víkingur Ó. - Fram (Ólafsvíkurvöllur)
19:15 Víkingur R. - Tindastóll (Víkingsvöllur)
19:15 Grótta - Magni (Gróttuvöllur)
19:15 Sindri - Fylkir (Sindravellir)
1.deild kvenna:
20:00 Fram - Álftanes (Framvöllur)
4. deild karla:
20:00 Ísbjörninn - Ýmir(Kórinn - Gervigras)
20:00 Vatnaliljur - Mídas (Fagrilundur)




