Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 19. júní 2013 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Álfukeppnin: Leikir dagsins - Gestgjafarnir mæta Mexíkó
Tveir leikir fara fram í Álfukeppninni í dag, en gestgjafarnir mæta Mexíkó í hörkuleik.

Brasilía vann fyrsta leik sinn á mótinu gegn Japan, 3-0 og ætlar liðið sér að fylgja því eftir á meðan Mexíkó tapaði fyrir Ítalíu, 1-2.

Ítalía og Japan mætast í seinni leiknum, en Japan þarf nauðsynlega á sigri að halda, ætli liðið sér einhverja hluti í keppninni.

Leikir dagsins:
19:00 Brasilía - Mexíkó (Beint á RÚV Íþróttir)
22:00 Ítalía - Japan (Beint á RÚV Íþróttir)

Slapp
banner