Skrifaði undir sex ára samning!
West Ham hefur keypt sóknarmanninn Andy Carroll frá Liverpool á 17,5 milljónir punda sem er hæsta upphæð sem félagið hefur borgað fyrir leikmann.
Carroll var lánaður til West Ham á síðasta tímabili en er nú formlega orðinn leikmaður Hamrana.
Carroll var lánaður til West Ham á síðasta tímabili en er nú formlega orðinn leikmaður Hamrana.
„Ég er hæstánægður með að vera hérna. Ég naut síðasta tímabils gríðarlega og það sannast í því að ég mæti aftur og geng frá þessum skiptum," segir Carroll sem skrifaði undir sex ára samning!
„Stuðningsmennirnir, liðsfélagarnir og félagið sjálft hafa komið frábærlega fram við mig. Það sem ég vildi var að snúa hingað aftur og spila fótbolta."


